Kaldur júní að baki

08.07 2011 - Föstudagur

Við sem búum á eystri hluta Íslands vitum sem er að tíðin hefur erfið, það hefur verið kalt, blautt og sólar vart notið um margra vikna skeið. Það kemur sjálfsagt engum á óvart að hitinn er langt undir meðaltali og þarf að fara marga áratugi aftur í tímann til að finna ámóta kaldan júnímánuð og þann sem að baki er. Í gær hitti heimildarmaður ágætis kunningja úr Reykjavík sem dvalið hefur á Austurlandi síðustu daga, þótti honum það ekkert tiltöku mál þó ekki sæist til sólar, veður væri ekki svo slæmt. Við erum bara orðin svo góðu vön! Einmitt, hafa sumur á Austurlandi verið góð hin síðustu ár? Nei, en þeim mun betri á hinum enda landsins þar sem áður rigndi sumrin í gegn skín nú sól sem aldrei fyrr og við sitjum eftir með norðanvindinn kaldan og blautan … alla vega fyrri hluta sumars sl. ár.

 

Ofangreindu til staðfestu getur hver sem áhuga hefur að ergja sig frekar á þessari bláköldu staðreynd farið inn á heimasíðu Veðurstofu Íslands, www.vedur.is Það gerði heimildarmaður einmitt og þar gefur m. a. að líta eftirfarandi.

 

Kalt var víðast hvar á landinu í júní og tíð erfið um landið norðanvert. Sérlega kalt var norðaustanlands og inn til landsins á Austurlandi og þarf að fara marga áratugi aftur í tímann til að finna ámóta kaldan júnímánuð á þeim slóðum. Hiti var hins vegar í kringum meðallag eða rétt ofan við það á litlu svæði á Suðvesturlandi, þar á meðal í Reykjavík. Mjög þurrt var um landið sunnan- og vestanvert og úrkoma var undir meðallagi á kuldasvæðunum Norðanlands en á norðanverðum Austfjörðum rigndi mikið.

 

Hitafar

Meðalhiti í Reykjavík var 9,2 stig og er það 0,2 stigum yfir meðallagi áranna 1961 til 1990. Þetta er samt kaldasti júnímánuður í Reykjavík frá árinu 1999 en ámóta hiti var í júní 2006. Meðalhiti á Akureyri var aðeins 6,7 stig og er það 2,4 stigum undir meðallagi. Þarf að fara aftur til 1952 til að finna kaldari júnímánuð á Akureyri. Áreiðanlegar mælingar ná aðeins aftur til 1954 á Egilsstöðum og er nýliðinn mánuður sá kaldasti á öllu því tímabili en gera má ráð fyrir því að kaldara hafi verið þar í júní 1952.

 

Úrkoma

Þurrviðrasamt var um meginhluta landsins. Úrkoma í Reykjavík mældist 15,1 mm. og er það innan við þriðjungur meðalúrkomu. Ámóta þurrt var í júní 2008. Á Akureyri mældist úrkoman 19,4 mm. og er það um 70% meðalúrkomu. Á Höfn í Hornafirði mældist úrkoman 33 mm.

Endanleg úrkomuuppgjör liggja ekki fyrir þegar þetta er skrifað en bráðabirgðatölur benda til þess að þótt þurrt hafi verið hafi met ekki verið slegin nema á fáeinum stöðvum. Á litlu svæði austanlands var úrkoma yfir meðallagi.

 

Sólskinsstundir

Sólskinsstundir mældust 268,1 í Reykjavík og er það 107 stundum umfram meðallag. Þetta er með meira móti en sólskinsstundirnar í júní voru þó talsvert fleiri í Reykjavík 2008. Á Akureyri mældust sólskinsstundirnar 136,8. Það er 40 stundum færra heldur en í meðalári. Sólskinsstundir hafa ekki verið jafnfáar í júní á Akureyri síðan 1996.

 

Ekki er uppgefið nánar á síðunni sambærilegar tölur fyrir Egilsstaði en ljóst er að tíðarfarið hefur verið enn verra þar en nyrðra, í ríkjandi norðaustanáttum, og við Vopnfirðingar vitum sem er að hér hefur sól vart sést síðan í upphafi maímánaðar og ljóst að fara þarf áratugi aftur í tímann til að finna daprara snemmsumar. Sá tími er að baki og einungis hægt að vona að framundan sé betri tíð því víst eigum við það skilið hafandi ekkert til sakar unnið annað en velja okkur búsetu einmitt á þessum stað.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir