
Í kvöld, frá og með kl. 18:30, opna fern hjón hús sín fyrir gestum og gangandi og bjóða til kjötsúpu að hætti hússins. Á sl. ári nýtti fjöldi Vopnfirðinga sér gestrisni þeirra er buðu til húss og er ekkert sem bendir til annars en að svo muni verða í kvöld. Tveimur klukkustundum síðar býðst fólki að líta inn í Kaupvang og hlýða á Jóhann Árelíuz, Vopnfirðing og rithöfund, lesa úr bók sinni Sveskjur í sólarlaginu. Aðgangur er ókeypis og sjálfsagt að nýta sér heimsókn rithöfundarins enda bókin öll um Vopnfirðinga.
Klukkan 22:00 er komið að Vinalögum Friðriks Ómars og Jógvans Hansen en tónleikar þeirra hafa þótt hreint magnaðir enda fara hér tveir af allra bestu söngvurum landsins. Eru tónleikarnir í félagsheimilinu Miklagarði og má reikna með að vel verði mætt því ekki er á hverjum degi sem slíkir öndvegis barkar sækja okkur heim. Miðaverð er kr. 2.000,-
Það góða fólk sem býður heim er: Ellert og Svanborg á Kolbeinsgötunni, Sibba og Steini á Lónabrautinni, Kristín Þóra og Hreiðar í Hamrahlíðinni og Inga Maja og Eyjólfur á Skálanesgötunni. Notið endilega tækifærið og njótið þess í boði er.