Vopnaskaki 2011 var framhaldið á föstudaginn 08. júlí og má með sanni segja að allt hafi gengið eins og vonir stóðu til. Það hjálpaði að lítið þurfti að treysta á veðrið því víst var hann svalur í þokuloftinu en hreint aukaatriði þegar fólk er ákveðið í að njóta þess sem í boði er, njóta þess að vera innan um gott fólk á góðri stund.
Líkt og í fyrra bauð gott fólk í hús, kjötsúpa var í boði í fjórum húsum og var ekki annað að heyra á gestgjöfum en mæting væri svipuð og á sl. ári. Hefð hefur skapast. Síðar um kvöldið var komið að söngfuglunum Friðriki Ómari og Jógvan í félagsheimilinu. Segir meira af þeim hér á eftir.