Vopnaskak, Friðrik Ómar og Jógvan

11.07 2011 - Mánudagur

Tveir af vinsælustu söngvurum þjóðarinnar, Jógvan Hansen og Friðrik Ómar, tóku höndum saman haustið 2009 og sendu frá sér tvöfaldan geisladisk í byrjun október það ár, Vinalög nefndu þeir diskinn. Og vinalög eru það hvar hvor um sig flytur 10 sérvalin lög frá grann- og vinaþjóðunum Íslendingum og Færeyingum. Friðrik syngur 10 af vinsælustu dægurlögum Færeyinga við íslenskra texta en Jógvan bregður fyrir sig færeyskunni í 10 af þekktustu dægurlögum Íslandssögunnar. Vinalög seldust strax gríðarvel bæði í Færeyjum og á Íslandi og greinilegt að þessi frábæra plata hittir þjóðirnar í hjartastað.

Friðrik Ómar og Jógvan eru nú á ferð um landið og sækja alls 24 staði heim og flytja Íslensk og færeysk dægurlög sem er að finna á plötu þeirra Vinalög, sem fyrr segir og leika sjálfir undir á píanó og gítar og spjalla við gesti. Komið var að Vopnafirði sl. föstudag og hér sem annars staðar mætti fólk því salinn fylltu liðlega 150 manns er skemmti sér konunglega enda söngvarar í allra fremstu röð. Frásagnargleði Friðriks Ómars, sem ber nöfn Friðriks Ólafssonar skákmeistara og Ómars Ragnarssonar lífskústners, er einstök en innskot Jógvans sérlega vel til fundin. Söngurinn var þó aðall kvöldsins og má með sanni segja að þar sem þeir koma ætti enginn að láta happ úr hendi sleppa.

Meðfylgjandi eru nokkrar myndir Þorsteins Jóns Bjarkasonar.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir