Vopnaskak, fjölskyldudagur

11.07 2011 - Mánudagur

Menningarfulltrúi að viðhöfðu samráði ákvað að fjölskyldudagur Vopnaskaks skyldi haldinn innandyra, kom aldrei til að skjóli yrði komið á útisviði miðbæjarins enda veður leiðinlegt og spáin engu betri. Reyndist ákvörðunin hin gæfusamasta því bæði var kalt og rigndi löngum stundum allan laugardaginn. Inn í félagsheimilið tók fólk að koma uppúr kl. 13 og þegar best lét var salurinn þétt skipaður fólki og stemningin með miklum ágætum. Er ekki að efa að salan hafi gengið miklu betur þar eð fólk gat rölt um og velt vöngum ólíkt því sem var á sl. ári þegar kuldinn kvaldi alla og salan því sem næst engin.

Klukkan 15 hófst svo formleg dagskrá á sviði með spilamennsku Batterísins og stóðu okkar menn sig með mikilli prýði. Töframaðurinn Einar Mikael steig því næst á svið en ungi maðurinn er með þeim allra bestu í þessari lisgrein á landinu - og sýndi það með óyggjandi hætti. Skemmti fólk sér konunglega, náði Einar Mikael vel til áhugasamra áhorfenda og eins og ávallt er var það ungviðið sem sýndi töfrabrögðunum mestan áhuga.

Söngfuglarnir Ágústa og Gabríela Sól sungu eitt lag með Baldvin og U2 bandinu, það gerðu Diljá og Bryndís einnig - og stóðu sig að sönnu vel - en senuþjófur dagsins var stóri bróðir Gabríelu, Daníel Smári. Án efa kom ungi maðurinn velflestum á óvart með framgöngu sinni en af miklu öryggi söng hann tvö lög við undirleik Baldvins og uppskar verðskuldað lófaklapp fyrir. Sannarlega ánægjulegt þegar okkar fólk sýnir hvað í því býr.

Formleg dagskrá var þar með á enda en kl. 20:30 um kvöldið var komið að Karlakórnum Drífandi og dansleik með U2 bandinu kl. 23:00 - dagskrá sum sé hvergi tæmd.

Meðfylgjandi eru myndir Bjarka Björgólfssonar og til viðbótar heimildarmanns.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir