Á laugardagskvöldið flutti Karlakórinn Drífandi frá Fljótsdalshéraði söngdagskrá sína en kórinn hyggur á landvinninga með söngför til Vesturheims síðar í þessum mánuði. Í Miklagarð var kórinn mættur undir stjórn kórstjórans, Drífu Sigurðardóttur, skólastjóra tónlistarskóla Fellabæjar. Dagskráin tekur mið af vesturför kórsins, þjóðleg lög fyrir hlé og léttari lög eftir hlé. Er skemmst frá því að segja að fólki féll vel við flutning Drífanda, sem fengu uppklapp í lok tónleika og sungu óskalag.
Meðfylgjandi eru nokkrar myndir Bjarka Björgólfssonar og látum við myndunum eftir að tala sínu máli um leið og við óskum kórfélögum góðrar ferðar til Kananda.