Safnadagur á Bustarfelli fjölsóttur

12.07 2011 - Þriðjudagur

Vopnfirðingar og lengra aðkomnir gestir hafa um árabil fjölmennt í minjasafnið á Bustarfelli - á því var engin breyting á sunnudag því vel var mætt og full ástæða til, bæði er ávallt eitthvað um að vera og veður bauð sannarlega uppá útivist. Alltaf er eitthvað nýtt sem ber fyrir augu auk þess sem ánægjulegt er að gefa sér tíma til að staldra við og rabba við fólk. Hjáleigan hefur að sönnu umbylt starfi safnsins og sýndi sig að á stundum sem þessum mættu fermetrarnir e. t. v. vera fleiri þó notaleg þrengslin tilheyri heimsókn sem þessari.

Að undanförnu hafa Vopnfirðingar verið þjakaðir af drunga og kulda en svo vel vildi til að máttarvöld sáu aumur á Austfirðingum og á sunnudag brosti sólin á móti gestum Bustarfells. Þegar veðrið leikur við mann og annan er allt svo miklu auðveldara - og ánægjulegra. Dagurinn var enda hinn besti í alla staði svo sem 40 ljósmyndir bera með sér.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir