Einherji/Höttur lék gegn Völsungi í 4. fl.

13.07 2011 - Miðvikudagur

Heimildarmaður var mættur á Vopnafjarðarvöll í gærkvöldi til að fylgjast með leik sameiginlegs liðs Einherja og Hattar og Völsungs frá Húsavík í 4. flokki stúlkna. Er skemmst frá því að segja að aðkomustúlkur fóru með sigur af hólmi 2:4 eftir að hafa leitt 0:3 í hléi. Mörkin voru misslysaleg en eftir að hafa minnkað muninn í 2:3 áttu okkar dömur möguleika en rétt fyrir leikslok kom rothöggið og liðið varð að sætta sig við tap.

Aðstæður til knattspyrnu voru hinar allra bestu og þó ekki færi mikið fyrir auglýsingum fyrir leikinn lagði fjöldi manns leið sína á völlinn enda ávallt ánægjulegt að sýna sig og sjá aðra. Meðfylgjandi eru myndir heimildarmanns.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir