Bráðabirgðauppgjör Vopnafjarðar fyrstu 5 mánuði liggur fyrir

15.07 2011 - Föstudagur

Á síðasta fundi sveitarstjórnar, þann 07. júlí sl., gerði sveitarstjóri grein fyrir bráðabirgðauppgjöri ársins 2011, þ. e. fyrstu 5 mánuði ársins. Er athyglisvert að skoða niðurstöðutölur uppgjörsins í ljósi þess sem Karl Björnsson, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga, skrifaði í forystugrein Sveitarstjórnarmála og birtist hér í gær. Í rekstri sveitarfélags er margs að gæta og ekki aleinfalt að áætla tekjur og gjöld því sveiflur eru í tekjum íbúa á stað þar sem uppsjávarfiskur er ráðandi þáttur en álagningarprósenta útsvars er 14.41%. Hið sama á við um rekstrargjöldin því í víðtækum rekstri getur eitt og annað breytt forsendum áætlunar. Þrátt fyrir allt hefur gengið allvel að framfylgja því sem lagt var upp með.

 

Meðfylgjandi er úr fundargerð hreppsnefndar Vopnafjarðarhrepps af nefndum fundi 07. júlí. sl. viðvíkjandi rekstur sveitarfélagsins fyrri hluta ársins 2011.

 

3. mál. Bráðabirgðauppgjör Vopnafjarðarhrepps fyrir fyrstu 5 mánuði ársins 2011.-

 

Lagður fram árshlutareikningur Vopnafjarðarhrepps fyrir 5 fyrstu mánuði ársins 2011. Í reikningnum kemur fram myndrænt hvernig staða hinna mismunandi málaflokka er samanborið við hlutfallaða fjárhagsáætlun ársins. Þá er lagður fram rekstrarreikningur samstæðunnar, efnahagsreikningur, sjóðstreymisyfirlit, sundurliðaður rekstrarreikningur niður á allar stofnanir sveitarfélagsins og málaflokkayfirlit. Öllum þessu skjölum er stillt upp miðað við bókhald fyrir 5 fyrstu mánuði ársins samanborið við hlutfallaða fjárhagsáætlun ársins 2011.

 

Sveitarstjóri gerði grein fyrir fyrirliggjandi gögnum. Í máli hans kom fram að vel hefur tekist til við að halda almennum rekstrargjöldum, launum og rekstrargjöldum innan marka fjárhagsáætlunar. Þetta eru þau gjöld sem stjórnendur sveitarfélagsins geta stýrt að nokkru leyti. Í rekstrarreikningi kemur fram að þessi gjöld eru 92, 5 % af því sem hlutfölluð fjárhagsáætlun ársins gerir ráð fyrir að þau megi vera.

 

Rekstrartekjur eru 42,2 m. kr. lægri en hlutfölluð fjárhagsáætlun gerir ráð fyrir. Skýring þessa er að útsvör eru lítillega undir áætlun, sama er að segja um framlög úr Jöfnunarsjóði og mestur munurinn er á öðrum rekstrartekjum, sem skýrist af því að ýmis framlög og tekjur, sem koma frá ríki og annars staðar frá hafa ekki verið hlutfallaðar niður á þetta tímabil heldur bókast þegar þær koma inn.

 

Þrátt fyrir að tekjur séu ekki að skila sér að fullu á þessu tímabili þá er gert ráð fyrir að tekjuáætlun rétti af þegar lengra líður fram á árið. Rekstrarniðurstaða þessa tímabils er af þessum sökum neikvæð um 12,9 m.kr. meðan hlutfölluð fjárhagsáætlun, sem gerir ráð fyrir jöfnu tekjuflæði alla mánuði gerir ráð fyrir 26,4 m. kr. hagnaði. Hér er því um 39.3 m. kr. mismun að ræða og hafa þá verið innreiknuð fjármagnsgjöld sem eru 13,8 m.kr. hærri en ráð hafði verið fyrir gert sökum þess að verðbólguhraði hefur verið mun meiri en reiknað var með um síðustu áramót þegar fjárhagsáætlun ársins 2011var unnin.

 

Í heild verður að segja að vel hafi tekist að halda sjó í rekstrarútgjöldum öðrum en fjármagnsgjöldum.

 

Handbært fé í ársbyrjun var rétt um 19,5 m. kr. Gengið hefur verið á það á þessu tímabili til að greiða kostnað við rekstur sveitarfélagsins fram að þessu þ.a. handbært fé er nú 9,5 m. kr.

 

Í árslok 2010 fékk sveitarfélagið 30 m. kr. lánsheimild hjá Lánasjóði Sveitarfélaga. Ekki hefur enn þurft að hefja þetta lán.

 

Sem stendur er því staða rekstarútgjalda í ágætum málum, tekjum sem á vantar þarf að ná í hús og vonast er til þess að verðbólgan fari ekki á skrið.

 

Hreppsnefnd lýsir ánægju með það að árshlutauppgjör sveitarfélagsins, fyrir 5 fyrstu mánuði ársins, liggi fyrir á fundinum og jafnframt fyrir greinargóða yfirferð sveitarstjóra.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir