Samningur undirritaður milli Einherja og hrepps

18.07 2011 - Mánudagur

Sveitarstjóri, fyrir hönd Vopnafjarðarhrepps, og Einar Björn Kristbergsson, f. h. Ungmennafélagsins Einherja, undirrituðu nýjan samning aðila í millum sl. föstudag og staðfestu síðan brosandi með handabandi. Í samstarfssamningi er ungmennafélaginu tryggður aðgangur að íþróttahúsi og -velli en hvoru tveggja er í umsjá sveitarfélagsins og á móti skuldbindur Einherji sig til að tryggt sé að umgengni sé til fyrirmyndar. Er félaginu heimilt að halda í íþróttahúsi og -velli leikjanámskeið auk venjubundinna æfinga á vegum þess.

Vallarstjórn er skipuð tveimur aðilum, fulltrúa sveitarfélagsins og ungmennafélagsins, og eru hún ráðgefandi varðandi viðhald og rekstur valla. Það er í höndum vallarstjórnar að ákveða hvort og hvenær vellir eru í nothæfu ástandi til æfinga og keppni. Í tilfelli íþróttahúss og vallar er sveitarfélaginu heimilt að nota mannvirkin enda komi það ekki niður á starfsemi Einherja.

Vopnafjarðarhreppur annast daglegan rekstur fyrrgreindra svæða og kostar allan slátt, rakstur, þökur o. þ. h. sem nauðsynlegt er til að halda völlum í nothæfu ástandi. Einherji annast þrif á vallarsvæði í tengslum við leiki þess og æfingar og hefur fulla heimild til að reka veitingasölu á vellinum og sveitarfélaginu óviðkomandi. Auk þess er Einherja heimilt að setja upp auglýsingaskilti á vallarsvæðinu enda sé það gert í samráði við vallarstjórn.

Að lokum má geta þess, óháð samningsundirritun en varðar íþróttavallarsvæði sveitarfélagsins, að einstaklingur hefur boðist til að leggja aðilum til þökur á nýjan íþróttavöll. Hafa verið uppi hugmyndir um árabil að þökuleggja gamla malarvöllinn ofan núverandi keppnisvallar en að sjálfsögðu yrði það aldrei gert nema að undangenginni vinnu við undirlag og meta þarf gæði þess grass sem býðst enda gras og gras ekki það sama þegar að íþróttavelli kemur. En vel er boðið.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir