Hafnarferð Einherja

18.07 2011 - Mánudagur

Einherji sótti eigi gull í greipar Hornfirðinga er leikið var í D-riðli 3ju deildar sl. laugardag á Höfn við framúrskarandi aðstæður; völlur Hornfirðinga líklega einn albesti grasvöllur landsins og þrátt fyrir vind nokkurn var hlýtt og sólskin í bland við eitt og eitt ský á himni. Svo fór að heimamenn skoruðu fjögur meðan gestirnir náðu einungis að setja eitt mark.

Leikurinn var hin ágætasta skemmtun, jafn þrátt fyrir niðurstöðutölurnar. Einherji fékk á sig mark snemma leiks en auðnaðist að jafna seint í hálfleiknum. Adam dvaldi sem kunnugt er stutt í paradís og það upplifðu okkar drengir einnig því einungis mínútu eftir markið skoruðu heimamenn og sýndu af hverju þeir eru á toppnum og ekki annað lið. Á þessum skelli jöfnuðu sig okkar menn aldrei og þrátt fyrir góða baráttu og á stundum skínandi samleik var það Sindri sem skoraði, 2var.

Á sama tíma og leikið var á Höfn lék Magni heima gegn Leikni. Hvorugt liðið megnaði að knýja fram sigur og með jafntefli liðanna er Sindri stunginn af en nefnd 2 lið ásamt Einherja í stöðu til að ná í umspil 3ju deildar. Um næstu helgi leika okkar menn einmitt á Grenivík og vinnist sá leikur hafandi þrjá heimaleiki óleikna eru möguleikar Einherja á umspili raunhæfir. En fyrst þarf sigur að vinnast í Eyjafirðinum utanverðum.

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir