Haldið á slóðir Vápnfirðinga sögu

19.07 2011 - Þriðjudagur

Í gærkvöldi hélt hópur velunnara Vopnfirðinga sögu um slóðir hinnar fornu sögu undir handleiðslu Ágústu Þorkelsdóttur en Ágústa er einn svo kallaðra fjölvirkja er stunduðu nám í menningartengdri ferðaþjónustu á vegum Þekkingarnets Austurlands, er Þórunn Egilsdóttir stýrði veturinn 2009-2010. Lokaverkefni nemenda hópsins var einmitt sagan Vopnfirska og af öðrum ólöstuðum kann Ágústa söguna best - og kann aukin heldur þá list að glæða söguna lífi. Farið var um sögusvið Vápnfirðinga sögu en sögusviðið er tiltölulega þröngt og því má fara um sviðið á um 3 klukkustundum - og þó tíminn sé dýrmætur er honum vel varið í ferð sem þessari.

Haldið var frá Kaupvangi kl. 20:00 í rútu Sundleiðar og haldið inn að Hofi, bæ Brodd-Helga Þorgilssonar, sem er miðpunktur Vopnfirðinga sögu. Á leiðinni var greint frá þeim stöðum sem fyrir koma í sögunni en á Hofi var bæ Helga að finna, hann hefur án alls vafa verið hinn myndarlegasti enda bær höfðingja. Hof var á jörðinni en eins mikið og sagan umhverfist um bæinn er frá einu og öðru að segja þegar þangað er komið. Fornleifarannsóknir hafa verið stundaðar á Hofsjörð en mikið verk er óunnið. Frá Hofi var haldið í Sunnudalinn þar sem þing Vopnfirðinga voru haldin.

Uppgjör sögunnar á sér stað í Böðvarsdal, við Eyvindarstaði, en sú mikla dramatík sem þar átti sér stað og þær sættir sem síðar tókust birtast ljós lifandi í lýsingum Ágústu og vonandi að öðrum takist að feta í fótspor hennar því mikilvægt er að fleiri komi að leiðsögninni. Og ekki bara viðvíkjandi Vopnfirðinga sögu heldur þeirrar miklu sögu sem Vopnafjörður hefur að geyma allt frá frásögninni af drekanum til okkar dags en heimildarmaður hefur lengi verið talsmaður þess að stefnt verði að uppbyggingu Söguseturs Vopnfirðinga og hver veit nema sá hinn sami setji hugmynd sína fram öðrum til upplýsinga og vonandi síðar sem fyrsta skref raungerðar.

Meðfylgjandi eru nokkrar myndir úr söguslóðaför áhugahópsins.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir