Hafnarferð - myndataka á ferð

20.07 2011 - Miðvikudagur

Heimildarmaður var í hópi Vopnfirðinga er lögðu land undir fót síðastliðinn laugardag í þeim tilgangi að fylgja liðinu okkar, Einherja, í baráttu þeirra í 3. deild D-riðils Íslandsmótsins. Sem kunnugt er fóru leikar svo að okkar piltar lutu í lægra haldi - lutu í gras eins og goðsögnin Bjarni Fel gjarnan orðaði það - en enn eru möguleikar fyrir Einherja að ná í umspil 3ju deildar. Lykillinn að því er sigur næst komandi laugardag er att verður kappi við Magna frá Grenivík en við ramman rjá er að eiga því þeir eru harðskeyttir norðanmenn. Á móti kemur að þetta er tækifærið, annað býðst ekki ef að líkum lætur.

Aðeins að meðfylgjandi myndasyrpu. Heimildarmaður hefur smám saman verið að þróa nýja listgrein - sér nú hver er listin - sem felst í myndatöku á ferð, útum bílglugga á góðri ferð. Veröldin svífur sum sé framhjá á 80-90 km. hraða og Sláturhúsið hraðar hendur kemur í hugann enda skiptir máli að vera snöggur á takkann eigi sýslan að bera ávöxt. Að sjálfsögðu ber að taka viljann fram yfir verkið, tilgangurinn helgar meðalið þar sem augnablikið er fangað með auga myndavélarinnar. Heimildarmaður naut þeirra augljósu kosta að Einar Björn hélt um stjórn bifreiðarinnar, öruggur sem hann er, en hefur reynt hitt ítrekað, aka og mynda samtímis. Sagan segir á hinn bóginn að betur færi á að hann einbeitti sér að öðru í einu - og þá helst akstrinum hafandi stýrið og pedalana fyrir framan sig.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir