Um þarsíðustu helgi bauðst Vopnfirðingum og gestum að njóta líflegrar bæjarhátíðar með ýmis konar viðburðum, skammt er stórra högga á milli því á morgun, fimmtudaginn 21. júlí, er boðið uppá leikhús og tónlist. Leikhús bæði úti og inni í þéttbýlinu, baggatónleikar á Bustarfelli.
Leikhópurinn Lotta mætir í bæinn enn eitt árið til að skemmta börnum á öllum aldri, að þessu sinni með ævintýrið Mjallhvít og dvergarnir sjö; Aldís Davíðs með einleikinn Kona einsömul eftir leiklistafrömuðinn Dario Fo og konu hans Franca Rame og loks Bluegrass bandið Brother Grass með baggatónleika í stóra tjaldinu á Bustafelli.
Leikhópurinn Lotta hefur verið óþreytandi að þeysast um landið með leiksýningar beinlínis ætlaðar börnum - á öllum aldri. Þau munu sýna ævintýrið Mjallhvít og dvergarnir sjö á tjaldstæðinu á Vopnafirði fimmtudaginn 21. júlí kl. 18:00 - miðaverð er hófstillt eða kr. 1.500. Frásögn þeirra af starfi sínu er í stuttu máli þessi:
"Allt frá stofnun hefur hópurinn einsett sér að setja upp skemmtilegar fjölskyldusýningar. Við byrjuðum á Dýrunum í Hálsaskógi, fylgdum þeim eftir með Galdrakarlinum í Oz, þá var það Rauðhetta og í fyrra sýndum við Hans klaufa fyrir rúmlega 20.000 áhorfendur. Síðustu 5 ár höfum við því tekið á móti hátt í 100.000 áhorfendum og þökkum við öllum vinum okkar fyrir frábærar viðtökur. Við gætum hreinlega ekki verið hamingjusamari".
Í félagsheimilinu Miklagarði kl. 21:00 fimmtudaginn 21. verður sýndur einleikurinn Kona einsömul eftir snillinginn Dario Fo og eiginkonu hans, Franca Rame. Leikari er Aldís Davíðs en um verkið segir:
"Þessi einstaka einleiks sýning fjallar um ævintýralegu konuna Maríu. Líf Maríu breytist skyndilega þegar kona flytur inní íbúð í húsinu á móti hennar íbúð. Hún deilir með þessari nýju nágranna konu sinni hversu æðislegt líf hennar sé. En fljótt kemur í ljós að María er læst inni í íbúðinni og eiginmaðurinn hennar sá eini sem hefur lykil. Fljótlega kynnumst við undarlegum lifnaðar háttum á heimilinu sem snerta á hinum ýmsustu furðufuglum". Miðaverð á sýninguna er kr. 2.000.
Ekki er allt upptalið og ljóst að þeir sem menningar vilja njóta þurfa að velja því á sama tíma og Kona einsömul er sýnd í Miklagarði, fimmtudaginn 21. kl. 21:00, hefjast tónleikar Brother Grass í stóra tjaldinu á Bustarfelli. Bluegrass bandið hefur vakið mikla athygli og komið víða fram og um sveitina segir:
"Hljómsveitin Brother Grass var stofnuð síðla sumars 2010 þegar Hildur, Sandra, Soffía og Ösp ákváðu að halda saman bluegrass tónleika. Þeim leist svo vel á samstarfið að þær ákváðu að gera eitthvað meira úr þessu og fengu til liðs við sig gítarleikarann Örn Eldjárn, bróður Aspar. Hljómsveitin hét í smá tíma Grass en eftir að bróðirinn bættist í hópinn þá var ekki annað hægt en að kalla hljómsveitina Brother Grass.
Hljómsveitin spilar bræðing af bluegras
s, blues, folk, old time mountain hillbilly music og gospel; eða tónlist sem segir sögu fólks. Lögin sem hljómsveitin spilar eru frá ýmsum tímum en segja má að hún einkennist af suðurríkjahljómi og gleði. Hljómsveitarmeðlimir eru duglegir við að prófa sig áfram með ný hljóðfæri og mætti því kalla hljómsveitina hálfgert Jug Band. Meðal hljóðfæra eru þvottabali, þvottabretti, hristur, gítarar, víbraslappi, harmonikka, gyðingaharpa og cajun tromma".
Tónleikar Brother Grass á Bustarfelli hefjast sem sagt kl. 21:00 og er miðaverð einungis 1.000 kr. en til sölu verður aukinheldur ljúffeng og endurnærandi kjötsúpa í glasi ásamt fleira góðgæti frá kl. 20:00.