Af fólki og náttúru

21.07 2011 - Fimmtudagur

Frá því hefur verið ítrekað greint að sumarið hafi að mestu farið framhjá Austurlandi, eiginlega algjörlega hingað til en þegar loks sést til sólar er samfélagið fljótt að lifna við - og á það við náttúruna einnig, hún tekur á sig aðra mynd en í dumbungnum. Loksins, loksins vaknaði samfélagið við skin sólar og þokkalegan hita og eru það engar ýkjur að allir íbúar fjórðungsins vona að nú fari loks að bera á sumri með geislum sólar og bærilegum hita.

Heimildarmaður fann sig knúinn til að rölta um hluta þorpsins með myndavél í hönd, raunar eru sumar teknar nokkru fyrir kl. 07 á leið til vinnu en hinar síðar að morgni þessa dags, þá hafði líka kviknað líf í bænum. Meðfylgjandi eru nokkrir tugir mynda, sem fá að segja söguna án texta ólíkt því sem gjarnan er þó gert á þessum vettvangi.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir