Vopnfirðingar hafa enga ástæðu til að kvarta yfir að þeim standi ekki til boða viðburðir í nafni menningar; helgin 08.-10. júlí kennd við Vopnaskak og safnadag, í gær voru eigi færri en þrír viðburðir, sbr. meðfylgjandi umfjöllun/myndir - og fyrstu helgi ágústmánaðar býðst Vopnfirðingum og gestum menningarhátíðin Einu sinni á ágústkvöldi með stórtónleikum Eyþórs Gunnarssonar og hljómsveitar, leiksýningar ungmenna, Erluhátíð og léttmessu.
Svo sem greint var frá á þessum vettvangi sl. miðvikudag stóð mikið til í menningarlífinu í gær, eigi færri en tvær leiksýningar einn og sama daginn auk tónleika á Bustarfelli á sama tíma og síðari leiksýningin færi fram. Allt gekk þetta eftir og hófst gamanið kl. 18:00 á tjaldstæðinu með sýningu Leikhópsins Lottu á verkinu um Mjallhvíti og dvergana sjö - og þrátt fyrir kuldagjóstur skemmtu sýniningargestir með miklum ágætum enda verkið að nokkru endurritað með skemmtilegum hætti.
Um kvöldið, á sama tíma, var annars vegar í boðið í leikhús með leikverkinu Kona einsömul, þar sem Aldís Davíðsdóttir leikur hina einmana Maríu, og tónleikar Brother Grass í tjaldinu á Bustarfelli. Þegar svona stendur á er ekki um annað að gera en að skipta liði, velja annan viðburðinn og mætti heimildarmaður til leikhúss meðan betri helmingurinn hélt á vit Bluegrass tóna í tjaldinu á Bustarfelli. Sneru báðir aðilar heim sáttir við hlutskipti sitt; Aldís fór á kostum í dramatísku verki Dario Fo og Franca Rame og hljómsveitin Grass skemmti tilheyrendum langt fram eftir kvöldi með miklum tilþrifum. 
Svo er bara að þakka fyrir sig og láta sig hlakka til næsta viðburðar, Einu sinni á ágústkvöldi - og láta það berast að á Vopnafirði er menningin eftir sem áður í hávegum höfð.
Meðfylgjandi er myndasyrpa af ofangreindum viðburðum, flestar af Mjallhvíti, þá af tónleikum og loks 3 af leiksýningu Aldísar, sem heimildarmaður fékk að taka, án leifturljóss og líða myndirnar fyrir það!