Við hreint afburða veðurfarslegar aðstæður atti Einherji kappi við Magna á Grenivík sl. laugardag, sunnanþeyr, sólskin og hiti uppá liðlega 20°C var það sem í boði var. Leikurinn bauð uppá gríðarlega baráttu allan leikinn, Magni braut ísinn undir lok fyrri hálfleiks er mistök áttu sér stað í vörn okkar manna, 0:1 í hálfleik. Í síðari hálfleik hélt baráttan áfram, í tvígang varði Tomislav meistaralega maður á móti manni en það voru gestirnir sem náðu að koma á marki, rétt fyrir leikslok, og 1:1 var niðurstaðan. Okkar mönn fögnuðu, heimamenn ekki.
Úrslitin þýða í raun að Einherji á enn möguleika á umspili 3ju deildar en leikmenn eiga heiður skilinn fyrir gríðarlegan dugnað og baráttu frá upphafi til enda leiks. Magni var sterkari aðilinn í leiknum, Tomislav varð að sýna sínar allra bestu hliðar nokkrum sinnum, en sá baráttuandi sem skein af Einherja kemur liðinu langt. Liðshópurinn eins lítill og hægt er að komast af með meðan Magni hefur yfir að ráða fjölda manna og hafa bætt við sig nokkrum í skiptiglugganum, við fengið tvo frá Draupni og eru þeir boðnir velkomnir til okkar, Ægir og Atli.
Skammt er leikja á milli því miðvikudaginn næsta fær Einherji Huginn í heimsókn, þann leik verðum við að vinna og ekkert sem segir að það eigum við ekki að geta. Föstudaginn 05. ágúst er þarnæsti leikur, einnig heima og þá gegn Leikni. Spennandi tími framundan þó óneitanlega sé það nöturleg staðreynd að örsumarið 2011 sé langt komið - í næsta mánuði er það búið.