Listasmiðjur í tengslum við menningarhátíðina Einu sinni á ágústkvöldi fara af stað í dag þegar leiðbeinandinn Valgeir Skagfjörð hittir hópinn í félagsheimilinu Miklagarði. 14 krakkar eru skráðir að þessu sinni, mögulega bætast einhverjir við og er hér með auglýst eftir fleiri drengjum því hingað til hafa einungis tveir skráð sig til þátttöku en sjái þeir sér ekki fært að vera með, piltarnir, leysa stúlkurnar það sem þeim hefði ellegar verið ætlað að gera. Þau ár sem smiðjurnar hafa verið starfandi hefur starfið verið sérlega blómlegt og afurð hvers árs vakið mikla og verðskuldaða athygli.
Annars lítur dagskráin út með þessum hætti - það sem beinlínis tilheyrir hátíðinni og það sem er að ske óháð henni.
- Mán. 01.08 (frídagur versl.m.) – Listasmiðjur byrja. Einn leiðbeinandi líkt og í fyrra – sá hinn sami, Valgeir Skagfjörð - og þá gekk þetta frábærlega!
- Fös. 05.08 - Íslandsmótið í knattspyrnu: Einherji - Leiknir á Vopnafjarðarvelli kl. 19:00. Athugið að um kl. 18:30 verður boðið til hamborgarveislu gegn vægu gjaldi - sparið matseldina heima fyrir.
- Lau. 06.08 – Erluhátíð í Vopnafjarðarskóla kl. 13:00 – 15:00. Einstakur viðburður í Vopnafjarðarskóla. Vettvangsferð um Hofsárdal að hátíð lokinni. Vakin er sérstök athygli á þessum viðburði þar sem skáldkonunnar er minnst.
- Lau. 06.08 - Fjölskylduskemmtun í Miklagarði kl. 20:00 – sýning ungmenna og skáldakvöld. Þessi kvöld hafa frá upphafi verið einstök skemmtun – missið ekki af þessari.
- Lau. 06.08 – Tónleikar stórbands Eyþórs Gunnarssonar flytur tónlist Jóns Múla við ljóð Jónasar - af þessum frábæru tónleikum má enginn missa!
- Sun. 07.08 – Léttmessa kl. 14:00 – Edgar Smári og Óskar Einarsson ásamt sr. Brynhildi – þá er stuð!
- Sun. 07.08 - Viðburður á Bustarfelli síðar um daginn.
- Sun. 07.08 - Á slóðum Vopnfirðinga sögu. Ferð frá Kaupvangi kl. 17:00 undir handleiðslu Ágústu Þorkelsdóttur.