Líkt og greint var frá í gær hófst menningarhátíðin Einu sinni á ágústkvöldi í gær með fyrstu æfingu listasmiðju, hvar Valgeir Skagfjörð hitti hina ungu þátttakendur fyrsta sinni. Mættir voru 13 áhugasöm ungmenni en á þessari stundu er vitað að 3 muni bætast í hópinn í dag og talan fari í 16 - einn þeirra er piltur svo þeir verða tveir ef að líkum lætur. Að venju settist leiðbeinandi niður með hópnum, sem myndaði hring, og fékk þau til að tjá sig svona til að losa um málbeinið og taka á feimninni.
Gekk allt að óskum og var það ánægður Valgeir sem kvaddi hópinn undir kl. 19 og höfðu þau þá verið að 3 klukkustundir en æfingarnar, sem eru frá kl. 16 dag hvern, geta staðið í allt að 4 klukkustundir enda mikil vinna innt af hendi á skömmum tíma. Að venju er ástæða til að láta sig hlakka til laugardagsins þegar afrakstur smiðjuvinnunnar verður opinberaður á sviði Miklagarðs. Gangi öllum þátttakendum allt í haginn.