Starfsmaður Selárdalslaugar, Ólafur B. Valgeirsson, kom að máli við heimildarmann í morgun og tjáði honum að lítilmenni hafi farið óblíðum höndum um eignir sveitarfélagsins með því að fjarlægja skilti af sundlaugarhúsi og ganga um sundlaugarsvæðið af vansæmd. Öðru hverju ber á að frelsið er misnotað en sem kunnugt er hefur fólk aðgang að Selárdalslaug allan sólarhringinn árið um kring þó auglýstur opnunartími sé miklu styttri og í samræmi við aðrar sundlaugar landsins.
Aðfaranótt sunnudagsins voru skilti skrúfuð af veggjum sundlaugarhúss, s. s. hitaskilti við potta, dýfingar bannaðar, hálkuvarúðarskilti, skilti er banna alla meðferð áfengis og reykinga auk varúðarskilta í búningsklefum. Hver tilgangurinn kann að vera með framferði sem þessu er vart hægt að átta sig á og er þess farið hér með á leit við hlutaðeigandi að hann/þeir skili skiltunum aftur til réttmætra eigenda en lögreglan hefur málið til rannsóknar.
Ólafur vill koma því á framfæri að þrátt fyrir framangreint eru 99.9% sundlaugargesta til mikillar fyrirmyndar. Kunni þeir sannarlega að njóta þess sem laugin hafi uppá bjóða, einstakt umhverfið og notalegt hitastigið, og komi fram við eignina af fullri virðingu. Sundlaugargestir í sl. viku voru liðlega 800 og er aðsóknin í ár, þrátt fyrir nöturlegt tíðarfarið, svipuð og á sl. ári.