Einu sinni á ágústkvöldi er komin af stað svo sem frá hefur verið greint með starfi listasmiðja ungmenna undir styrkri handleiðslu Valgeirs Skagfjörð. Hefur starfið gengið vel enda börnin áhugasöm og skapandi með reyndan leiðbeinandann þeim til halds og trausts.
Laugardagur er stóri dagurinn með Erluhátíð í Vopnafjarðarskóla kl. 13:00 þar sem fjallað verður um skáldkonuna Erlu, Guðfinnu Þorsteinsdóttur. Fjölskylduskemmtun í Miklagarði kl. 20:00, sem inniheldur skáldakvöld og leiksýningu smiðjunema, er ávallt beðið með eftirvæntingu en skemmtunin hefur aldrei svikið og í raun ótrúlegt hversu mikið má gera á skömmum tíma. Kl. 22:00, að loknu stuttu hléi að aflokinni fjölskylduskemmtun, stígur á svið stórband Eyþórs Gunnarssonar, sem skipað er nokkrum af allra bestu tónlistarmönnum Íslands. Forréttindi að slíkt bjóðist enda um einstakan viðburð er að ræða.
Á sunnudag er boðið til léttmessu kl. 14:00 með Edgar Smára Atlasyni og Óskari "gospel" Einarssyni en messugjörð annast sr. Brynhildur Óladóttir. Á sama tíma hefst sveitamarkaður á minjasafninu Bustarfelli og þar mikið um að vera fram eftir degi og kl. 17:00 er haldið á vit Vopnfirðinga sögu með ferð frá Kaupvangi.
Hér fer dagskrá helgarinnar:
Mánudagur 01. t. o. m. laugardagur 07. ágúst:
Smiðjuvinna ungmenna m/Valgeiri Skagfjörð – sýning á fjölsk.skemmtun
Föstudagur 05. ágúst:
Knattspyrna – Einherji – Leiknir kl. 19:00 á Vopnafjarðarvelli
Laugardagur 06. ágúst:
Erluhátíð í Vopnafjarðarskóla kl. 13:00. Menningardagskrá er varðar skáldkonuna Guðfinnu Þorsteinsdóttur - kaffiveitingar
Fjölskylduskemmtun í Miklagarði kl. 20:00, skáldakvöld og afrakstur smiðjuvinnu. Frítt inn
Stórtónleikar í Miklagarði. Sveit Eyþórs Gunnarssonar með söngkonunni Ellen Kristjánsdóttur kl. 22:00. Einstakur viðburður þar sem lög Múlans eru flutt og áður í Salnum Kópavogi. Aðg.eyrir einungis 1.000 krónur
Baropnun að tónleikum stórsveitarinnar loknum fram á nótt
Sunnudagur 07. ágúst:
Léttmessa í Vopnafjarðarkirkju: Edgar Smári og Agnar Már – sr. Brynhildur messar. Mun Edgar flytja m. a. lög af nýútkominni plötu sinni.
Sveitamarkaður á Bustarfelli kl. 14:00
Á slóðum Vopnfirðinga sögu – brottför frá Kaupvangi kl. 17:00