Af heimasíðu HB Granda hf., www.hbgrandi, má lesa að með hækkandi hita sjávar hafi makrílveiði aukist en á skömmum tíma hefur sjávarhitinn hækkað um 2.5 gráður. Skipin hafa verið við veiðar í Hvalbakshallinu og Rósagarðinum en lengi vel var makrílveiðin léleg fyrir Austurlandi meðan hitastig sjávar var um 5.5 gráður en hið hækkandi hitastig hefur miklu breytt. Þannig segir Arnþór Hjörleifsson, skipstjóri á Lundey NS að:
,,Það er búin að vera léleg makrílveiði fyrir austan upp á síðkastið enda hefur sjórinn verið mjög kaldur. Síðustu dagana hefur hitastigið hins vegar hækkað úr um 5,5°C í 7-8°C og það munar öllu hvað makrílveiðarnar varðar. Hér hafa verið lélegar lóðningar en núna virðist makríllinn vera að þétta sig og smáblettir eru að skila mjög skarpri veiði“. Vakti það athygli skipverja að sjá ekki eitt einasta skip í veiðiferðinni.
Svo sem segir í fyrirsögn hefur vinnslan gengið vel á Vopnafirði á yfirstandi sumarvertíð þar sem unnið er við frystingu á síld og makríl auk þess sem fellur fiskimjölsverksmiðjunni til. Um verslunarmannahelgina var hvergi slegið slöku við en dagana fyrir þá helgi hafði Magnús Þór Róbertsson, vinnslustjóri, þetta að segja:
,,Vinnslan hefur gengið eins og í sögu. Að vísu hefur dottið úr stöku dagur þar sem að Faxi RE hefur verið í breytingum og ekki tekið þátt í veiðunum en við höfum nýtt þá daga vel til þrifa og ýmissa lagfæringa,“ sagði Magnús Þór en nú vinna um 120 manns í uppsjávarfrystihúsi HB Granda á Vopnafirði og því er óhætt að fullyrða að uppsjávarvinnslan sé sannkölluð stóriðja í byggðarlaginu.
Í huga Magnúsar sem og annarra hjá félaginu hefur nýi blástursfrystirinn skipt sköpum fyrir vinnsluna, ekki síst er makrílinn varðar en frystirinn á sér skamma sögu í salarkynnum HB Granda eða frá öndverðu sumri. Um hann hafði Magnús þetta að segja og aftur er vitnað í heimasíðu félagsins:
,,Tilkoma blásturfrystisins gerir okkur kleift að frysta stærsta makrílinn, sem við hefðum ella ekki getað unnið með góðu móti, og afurðirnar eru mjög flott vara sem fallið hefur kaupendum vel í geð. Ef við hefðum ekki haft blásturfrystinn þá hefðum við sömuleiðis átt í erfiðleikum með að uppfylla vinnsluskylduna á makríl en samkvæmt reglugerð ráðuneytisins þá þurfum við að vinna a. m. k. 70% makrílaflans til manneldis,“ segir Magnús Þór. 
Að lokum má bæta því við að menn innan félagsins gerðu sér vonir um að innan skamms færi Faxi RE á veiðar að nýju. Hafa þær vonir gengið eftir og Faxi komið til Vopnafjarðar með afla. Ingunn NS og Lundey, sbr. mynd, hafa annast hráefnisöflun fyrir frystihúsið í sumar en með tilkomu 3ja skipsins er ljóst að betur verður tryggð hráefnisöflun allt til vertíðarloka öllum hlutaðeigandi til hagsbóta.