Menningarhátíðin Einu sinni á ágústkvöldi fór fram um helgina og er skemmst frá því að greina að vel tókst til í hvívetna. Hver einstakur atburður tókst með miklum ágætum en hátíðin naut þeirra kosta að vera vettvangur Erluhátíðar á laugardaginn en í samvinnu við Erlusjóð stóð menningarmálanefnd sveitarfélagsins að hátíðinni með fulltingi Menningarráðs Austurlands.
Að kveldi laugardagsins var komið að fjölskylduhátíð menningarhátíðarinnar, sem innihélt skáldakvöld og leik- og söngleik ungmenna, allt undir hnökralausri stjórn Valgeirs Skagfjörð. Leynir sér ekki að Valgeiri er flestum öðrum betur gefið að vinna með ungu fólki og frjór hugur hans er sem vítamín fyrir áhugasaman leikhópinn. Enda fór það svo að kvöldið var einstök skemmtun og þó margsinnis hafi verið sýnt fram á það áður er með ólíkindum hvað krakkarnir okkar eru móttækilegir og klárir - sýningin þeirra var mögnuð, sem flutti nokkur lög Múlabræðra sem eru minna þekkt.
Kvöldinu var hvergi nærri lokið því kl. 22 steig á svið stórband Eyþórs Gunnarssonar og hvílíkir listamenn. Það var svo sem vitað fyrir en engu að síður undrast maður ætíð hversu mikið hæfileikafólk þetta litla land státar af; sl. laugardagskvöld var hluti þessa afburðahóps mættur til Vopnafjarðar. Liðlega 80 manns voru mættir til tónleika meistara Eyþórs, uppeldissonar Jóns Múla, og stórbands hans og skemmtu sér konunglega enda hvernig á annað að vera þegar slíkir hljómar óma í félagsheimilinu Vopnfirska. Líkt og Valgeir hafði gert í leikverkinu fyrr um kvöldið lék sveitin nokkur lög Múlans minna þekkt en ekki lakari fyrir það og var eðlilega vel tekið. Það var hins vegar einkar vel til fundið hjá Eyþóri að ljúka tónleikunum með samsöng allra í salnum er kyrjað var "Einu sinni á ágústkvöldi" - glæsilegu kvöldi var þar með lokið.
Á sunnudag var komið að árlegri léttmessu, sem tengst hefur Einu sinni á ágústkvöldi á sl. árum, og voru mættir að sunnan tónlistarmennirnir, Edgar Smári Atlason og Agnar Már Magnússon, ásamt sr. Brynhildi Óladóttur, sóknarpresti Langanesbyggðar. Framganga allra þeim til sóma og ríkti skemmtileg stemning í Vopnafjarðarkirkju en messur þessar hafa aldrei svikið þann sem þetta ritar og hefur verið viðstaddur þær allar.
Sveitamarkaður bauðst þeim er vildu í Bustarfelli en er heimildarmann bar að garði var markaðurinn að mestu yfirgenginn enda hófst hann á sama tíma og léttmessa góða í Vopnafjarðarkirkju. Engu að síður var enn nokkur hópur fólks á svæðinu en Hjáleigan ku hafa verið þéttsetin allan daginn og vel var mætt í sölutjaldið.
Að lokum verður að geta þess að Ágústa Þorkelsdóttir hélt á slóðir Vopnfirðinga sögu og lagði upp frá Kaupvangi svo sem auglýst var. Hafði enginn tilkynnt þátttöku sína en þegar gesti bar að garði í Kaupvangskaffi gat Ágústa, samvisku sinnar vegna, ekki annað gert en að standa við auglýsta ferð og hélt af stað með ferðalangana í eigin bifreið - og höfðu allir ánægju af.