Einu sinni á ágústkvöldi - af Erluhátíð

08.08 2011 - Mánudagur

Meðfylgjandi eru nokkrar myndir frá Erluhátíð en hátíðin, sem átti sér vettvang í Vopnafjarðarskóla, var sérlega vel heppnuð og til hennar mættu milli 70-80 manns. Flytjendur allir stóðu sig með mikilli prýði en mikla athygli vakti erindi Önnu Þorbjargar Ingólfsdóttur um ævi, skáldskap og ritstöf Erlu, Guðfinnu Þorsteinsdóttur. Ekki síður var ánægjulegt að hlýða á dóttur skáldkonunnar, Hildigunni Valdimarsdóttur, flytja eitt ljóð móður sinnar.

Sem fyrr greinir var hátíðin í alla staði vel heppnuð en fundarstjóri var menningarfulltrúi Vopnafjarðar, Magnús Már Þorvaldsson, en miklu skiptir að halda þannig utan um málþing að það sé vel samþætt og renni vel áfram. Allir sem við sögu komu stóðu sig með prýði og fyrir þann sem ekki vissi mikið um Erlu fór af hátíðinni miklu betur upplýstur. Vísað er til áðurbirtrar dagskrár hvar sjá má alla þá sem við sögu komu. Sá hinn sami sem til hátíðar kom fór auk heldur þægilega mettur en um veitingar, sveitakaffið, sá Ágústa Þorkelsdóttir er jafnframt flutti ávarp á hátiðinni. Henni til fulltingis var matráður skólans, Dagný Sigurjónsdóttir.

Að lokinni hátíð var haldið í Hofsárdalinn og síðar í Brunahvamm undir leiðsögn Haraldar Jónssonar, barnabarns skáldkonunnar Erlu.

Að Erluhátíð lokinni er ljóst að Vopnfirðingar þurfa að taka til hendi og vinna skipulega með Vopnfirsku skáldin, Múlabræður eru í þeim hópi og vegnar vel.






Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir