Þess hefur ávallt verið gætt að fá til Vopnafjarðar góða listamenn til að fremja tónlist við léttmessu í Vopnafjarðarkirkju. Í gegnum árin hafa hingað komið Þorvaldur Halldórsson og Margrét Scheving, Guðrún Gunnarsdóttir, Ellen Kristjánsdóttir, Kristjana Stefánsdóttir, KK og nú loks Edgar Smári Atlason. Sannarlega föngulegur hópur og hefur öll árin verið ákaflega notaleg stund í litlu kirkjunni.
Edgar Smári var hingað mættur við annan mann, Agnar Már Magnússon píanóleikari, og sá hinn sami og lék undir hjá Kristjönu tveimur árum áður. Edgar kaus að syngja 2 lög af nýrri plötu sinni og fór vel með þau sem og hin sem flutt voru. Sr. Brynhildur Óladóttir annaðist athöfnina að þessu sinni og stóð sig prýðisvel, létt var hún sannarlega en minnti okkur auðvitað á af hverju við værum í kirkju og ekki annars staðar. Gerði sr. Brynhildur að umtalsefni bókina "Fiskur!" og fór vel á og sjálfsagt að biðja fólk um að kynna sér þetta litla kver.