Árlegur viðburður á viðburðadagatali minjasafnsins á Bustarfelli er sveitamarkaðsdagur og var hann haldinn í gær, sunnudaginn 07. ágúst. Að venju bar mýmarga gesti að garði en eins og svo mjög oft á þessu sumri var hann heldur napur, vindurinn, og hefur ugglaust eitthvað dregið úr aðsókn. Heimildarmaður komst ekki fyrr en undir kl. 15:30 í sveitina þar eð léttmessan var kl. 14:00.
Sölutjaldið var tekið að tæmast er komið var í það 1.5 klst. eftir opnun sveitamarkaðar en enn var fullt útúr húsi í Hjáleigunni en ekki er hægt að verjast þeirri hugsun hvernig ástandið var áður, án þessa litla snotra þjónustu- og veitingahúss minjasafnsins.