Fimmtudaginn 11. ágúst n. k. mun Magnús Ver mæta með íturvaxinn keppendahóp sinn í Austfjarðatröllið 2011 en hefð hefur skapast að keppt er í tveimur greinum á Vopnafirði. Svo verður einnig nú og munu þeir vera hér við iðju sína framan við Kaupvang frá og með kl. 17:00 nefndan dag. Öll þau ár sem Magnús hefur mætt hingað hafa Vopnfirðingar sýnt keppninni áhuga, komið og hvatt menn til dáða og er engin ástæða til að ætla annað en svo verði einnig nú.
Bæjargrill Vopnfirðinga var fært frá föstudeginum 05. ágúst sl. um viku þar eð margir höfðu brugðið sér til Sauðárkróks vegna árlegs fótboltamóts þar. Hafa aðstandendur ákveðið að bíða aðeins og sjá til hvort föstudagurinn 12. ágúst sé rétti dagurinn með hliðsjón af veðri, á morgun liggur það fyrir.
Nú þegar ágústmánuður nálgast miðbik sitt verður ekki hjá því komist að horfa um farinn veg og ergja sig á hversu ótrúlega dapurt Vopnfirska sumarið hefur verið, blautt og kalt er stysta lýsingin á því. Veðurspáin er heldur ekkert til að hrópa húrra fyrir, þvert á móti er kuldatíð framundan með regni, mismiklu milli daga en velflesta daga eitthvað. Af vefsíðu Veðurstofu má lesa að veður gæti orðið skaplegt á föstudag, hitinn næði 10°C en dagana þar á eftir er útlitið mun verra svo lengi getur vont versnað. Ingólfur Bragi málarameistari man ekki jafn ömurlega tíð þau 22 ár sem hann hefur orðið að treysta á mildi máttarvalda. Tjáði hann heimildarmanni að á Akureyri hafi rignt 68 mm. í júlí, það rigndi 68 mm. á Vopnafirði á 2 sólarhringum í síðasta mánuði!
Ekki liggja fyrir tölur um gistinætur á tjaldstæði Vopnafjarðar en á þeim stærstu á Norður- og Austurlandi og er um mikla fækkun að ræða. Íslendingar elta (eðlilega) veðrið og eru fljótir að láta sig hverfa geri hann sig líklegan að hella úr sér en auk veðurfarsins er hátt eldsneytisverð er og mun leika ferðaiðnaðinn illa – umferð um þjóðvegina er mun minni en var t. a. m. á sl. ári og ökuhraðinn lægri.