
Að vel athuguðu máli hefur verið ákveðið að árlegt
bæjargrill, Vopnafjarðargrill, verður föstudagskvöldið 12. ágúst n. k. Veðurspáin er eins og hún er þar sem segir á vef Veðurstofunnar fyrir svæðið Austurland; hæg austlæg eða breytileg átt og víða léttskýjað, en líkur á þokulofti við norður- og austurströndina og stöku skúrir sunnantil. Hiti 7-16 stig, svalast við norðausturströndina, en hlýjast í innsveitum vestanlands.
Dagurinn er föstudagurinn 12. ágúst, grilltími er kl. 19:00 og staðurinn er lóð grunnskólans.
Eins og segir í auglýsingu frá undirbúningsnefnd bæjar- eða Vopnafjarðargrillsins er fólk hvatt til að skreyta hús sín líkt og gert hefur verið undanfarin ár, mæta til skreytinga á hátíðarsvæðinu annað kvöld kl. 19:30. Grillið sjálft er síðan sólarhring síðar og ættu íbúar Vopnafjarðar að vera nokkuð vel að sér í hvernig formið er, þ. e. fólk mætir með stóla, borð, mat og góða skapið, er klætt með tilliti til veðurs en hafandi líflega tónlistarmenn sér til fulltingis, Steina Bjarka og Eirík Hafdal, er sjálfgefið að fólk standi upp og hreyfi sig í takt við tónfallið. Svo ekki sé talað um virka þátttöku í fjöldasöng.
Meðfylgjandi, óháð grillfrétt, myndir heimildarmanns af fögru sólarlagi gærkvöldsins, sem sannar að til eru undantekningar frá drunganum, einnig sumarið 2011.