Um síðastliðnu helgi áttu Vopnfirðingar þess kost að sjá knattspyrnu meistaraflokks, njóta menningarhátíðar, sækja Bustarfell heim á sveitamarkaði og fara á söguslóðir Vopnfirðinga sögu. Í þessari viku og um næstu helgi er boðið uppá átök kraftajötna - þegar í dag kl. 17:00 - Vopnafjarðargrill á morgun - frá og með kl. 19:00 - og knattspyrnumót 4. flokks á sunnudag. Í nágrenni Vopnafjarðar, á hálendi Möðrudals, er árleg gleði á laugardag og þangað hafa margir farið og notið þess sem þar er í boði.
Kraftajötnar í keppninni um Austfjarðatröllið mæta 6 jötnar, var upphaflega áætlað að yrðu 9 en menn eru að meiðast í átökunum og verða sum sé 6 sem hingað koma. Þegar þetta er ritað eru þeir að keppa á Þórshöfn, sem segir okkur að Austurland er að teygja sig til norðurs, hvar keppt er í 2 greinum eins og ávallt er gert hér. Bíladráttur, hönd yfir hönd, er önnur greinin sem hér verður keppt í, hin er jafnhöttun og báðar skammt frá Kaupvangi.
Rétt eins og greint var frá í gær er bæjargrillið, Vopnafjarðargrill, fastsett föstudagskvöldið 12. og hefst kl. 19. Boðið er uppá tvö stór grill en annars getur hver og einn tekið með sér sitt grill vilji hann það. Þegar í kvöld kl. 19:30 er kallað eftir vinnandi höndum við skreytingu svæðisins en sem kunnugt er vinna margar hendur létt verk. Veðrið í gærkvöldi var draumaveður kvölds sem þessa, nú er það liðið og sjálfsagt að benda fólki á að klæða sig miðað við veður(spá), þá farnast öllum vel og kvöldið ánægjulegt.
Á sunnudag, frá og með kl. 13:00, er lokamót 4. flokks drengja á Íslandsmótinu í 7 manna bolta en þar eru okkar piltar í forystu og hafa því staðið frábærlega vel. Nú gefst Vopnfirðingum tækifæri til að hvetja sína menn áfram á Vopnafjarðarvelli en það er löngu kunn staðreynd að hvatningin getur skilið milli sigurs og taps.
Hér að neðan má sjá stöðuna í E-riðli Íslandsmóts drengja í 4. flokki.
1 Einherji 9 leikir 6 - 1 - 2 52-18 19 stig
2 Kormákur 9 leikir 6 - 0 - 3 37-31 18 stig
3 Völsungur 9 leikir 3 - 0 - 6 40-30 9 stig
4 UMFL 9 leikir 2 - 1 - 6 12-62 7 stig