Þorbjörg Garðarsdóttir er nýr félagsráðgjafi hjá félagsþjónustu Fljótsdalshérað, er þjónar sveitarfélaginu okkar jafnframt. Þorbjörg þekkir sig vel innan þjónustunnar þar sem hún var starfandi sem verkefnisstjóri Ráðgjafar en færist til í starfi þar eð Hlín Pétursdóttir er komin í barneignarfrí. Er Þorbjörg hér með boðin velkomin, hún mun sækja Vopnafjörð heim svo sem í gildi hefur verið - fær Hlín bestu kveðjur í von um að öllum heilsist vel.
Sem fyrr gildir eftirfarandi.
Félagsþjónusta Fljótsdalshéraðs annast félagsþjónustu á Vopnafirði í samstarfi við Vopnafjarðarhrepp:
Félagsþjónusta Fljótsdalshéraðs
Lyngási 12, 700 Egilsstaðir
Sími: 470 0705
Fax: 470 0701
Opið kl. 9-16 virka daga. Hægt er að panta viðtal við félagsráðgjafa sem kemur reglulega til Vopnafjarðar.
Allar upplýsingar eru á vefsíðu félagsþjónustunnar.