Vopnafjarðargrill undirbúið

12.08 2011 - Föstudagur

Lítill en samheldinn hópur kom saman í gærkvöldi til undirbúnings Vopnafjarðargrills sem hefst í kvöld kl. 19 þó hverjum sem heimilt að mæta þegar honum býður svo við að horfa. Bjarki átti leið um svæðið með myndavélina og tók nokkrar myndir sem hér birtast. Er ekki að efa að kvöldið verði öllum hið ánægjulegasta enda ekki ástæða til annars þegar þess er gætt að maður er manns gaman.

Heimildarmaður verður ekki með að þessu sinni en óskar öllum ánægjulegrar kvöldstundar, njótið matarins, samvista við gott fólk og kyrjið með tvímenningunum svona eins og barkinn leyfir.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir