Skólasetning Vopnafjarðarskóla 22. ágúst

21.08 2011 - Sunnudagur

Fullkomin staðfesting þess að sumarið er á enda er sú staðreynd að skólar landsins eru einn af öðrum að taka til starfa þessa dagana. Vopnafjörður er þar engin undantekning og verður Vopnafjarðarskóli settur á morgun, mánudaginn 22. ágúst, kl. 10:00. Eftir stutta skólasetningu fara nemendur með sínum umsjónarkennara í stofur þar sem stundatöflur verða afhentar og rætt um fyrstu skóladagana. 

Fyrir ungviðið jafnt sem hin eldri eru það ávallt tímamót þegar að þessum tíma kemur, frelsi sumarsins er að baki og til þess er horft með ákveðnum söknuði. Eðlilega því framundan er tími skyldumætingar og skipulegs náms en þó frelsið sé yndislegt hefur stundartaflan sína augljósu kosti þar eð meiri festa kemst á líf hlutaðeigandi - og öll höfum við þörf fyrir hana. Líkt og okkur þykir fátt ánægjulegra en notalegt frí á góðum stað tekur heimkomunni engu fram því þá kemst að nýju skikk á tilveruna og þannig á það að vera.

Að vangaveltum loknum fá nemendur Vopnafjarðarskóla sem og þau eldri sem yfirgefa heimahagana næstu dægrin allra bestu kveðjur með von um ánægjulega skólavist - og víst verður að vanda vel á málum haldið í skólanum góða.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir