
Meistaraflokkur Ungmennafélagsins Einherja lauk keppni á Íslandsmótinu í knattspyrnu síðastliðinn laugardag er liðið atti kappi við efsta lið D-riðils 3. deildar, Sindra frá Hornafirði. Lauk leiknum með jafntefli, 2:2 eftir að staðan var 1:1 í hléi - mikil barátta en jafnteflið þýðir að Einherji fer í gegnum keppnina án þess að lúta í lægra haldi heima.
Fyrir leik var boðið uppá grillaða hamborgara og nutu leikmenn beggja liða kostanna að leik loknum og var vel tekið. Veður var það sem okkur hefur staðið til boða - oftast - á heimaleikjum okkar sl. tvö sumur, svalt, rakt og á stundum regn.
Rétt og eins byrjun skóla staðfestir sumarlok gildir hið sama um lok knattspyrnuvertíðar en um kvöldið komu Einherjamenn og -konur saman á Hótel Tanga þar sem boðað var til lokahófs vertíðar meistaraflokks - yngri flokka hóf verður svo í öndverðum september. Veitt voru verðlaun til þeirra sem fremstir þóttu fara þetta sumarið en kvöldið var í heild sinni sérlega vel heppnað hvar David Hannah þjálfari var formlega kvaddur. David vann gott starf og þegar liðið hefur náð að breyta jafntefli í sigur með aukinni reynslu verður liðið ekki árennilegt heim að sækja.