Í gær, mánudaginn 22. ágúst, var Vopnafjarðarskóli settur í sal skólans að viðstöddu fjölmenni. Skólastjórinn, Aðalbjörn Björnsson, ávarpaði gesti og fór í suttu máli yfir starfið í vetur en ekki var dvalið lengi við heldur fóru nemendur með umsjónarkennurum í stofur sínar. Nemendur eru eins og á sl. vetur 91 og má gera ráð fyrir að vel muni þeim farnast enda metnaður í starfi skólans.
Hefðbundið skólastarf hófst svo í morgun kl. 08:10 og má reikna með að einn og einn nemandi hafi verið ögn þreytulegur því nokkra daga tekur að vinda ofan af vöku- og svefnvenjum eftir frítíma sumarsins. Það er gömul saga og ný en smám saman næst jöfnuður á tilvistina og skólinn jafn ómissandi og nýafstaðið fríið.