
Skólastarfið er hafið, annar skóladagur vetrarins er í dag. Heimildarmaður átti leið um skólalóðina undir kl. 10:30 í gær og tók allnokkrar myndir af krökkunum í leik - einkum af þeim sem börðust drengilegri baráttu á sparkvelli skólans. Eins og börnunum þykja skyldur skólans íþyngjandi á stundum munu þau þegar frá líður átta sig á að ekkert æviskeið kemst í námunda við æskuárin og eru hér með hvött til að láta sér líða sem allra best innan veggja skólans sem og utan hans!
Látum svo myndasyrpunni eftir að túlka lífið í fyrstu löngu vetrarins 2011-12.