Í vikunni barst íbúum sveitarfélagsins tilkynning frá sveitarfélaginu og Heilbrigðiseftirliti Austurlands þess efnis að í neysluvatnið hefði borist óæskileg efni, sbr. meðfylgjandi texta. Gerlamengun sú sem fundist hefur er ný tilkomin en hvað veldur er á þessari stundu ekki vitað. Á hinn bóginn vinna starfsmenn sveitarfélagsins hörðum höndum að leit orsaka í samvinnu við HAUST og um leið og niðurstöður fást verða íbúar upplýstir.
Tilkynning til íbúa í þéttbýli Vopnafjarðar.Rannsóknir á neysluvatni í þéttbýli Vopnafjarðar hafa því miður sýnt gerlamengun í vatninu þannig að það stenst ekki gæðakröfur neysluvatnsreglugerðar nr. 536/2001.
Á þessum grunni er skylt að beina því til íbúa að þeir sjóði neysluvatn, sem notað er til drykkjar. Þetta á sérstaklega við um ungbörn, aldraða og veika, enda þótt öllum sé ráðlagt að sjóða það til drykkjar.
Í samvinnu við heilbrigðisyfirvöld og sérfræðinga á þessu sviði er unnið ötullega að því að leita orsaka og grípa til þeirra aðgerða sem nauðsynlegar eru til þess að vatnið uppfylli viðmið neysluvatnsreglugerðar.
Þessu er hér með komið á framfæri.
Vopnafirði 23. ágúst 2011
Vopnafjarðarhreppur Heilbrigðiseftirlit Austurlands