"Sumarið er tíminn þegar hjartað verður grænt og augu þín verða himinblá, ójá. ..." hljómar upphaf texta Bubba Morthens og má til sanns vegar færa að sumarið sé tíminn þó seint verði færðar sönnur á að hjartað verði grænt og augun himinblá. Á hinn bóginn má staðhæfa að umhverfið verður grænt og himinninn blár allan sólarhringinn þegar birtan ræður ríkjum - og þegar grasið vex þarf að slá það auk þess sem öðrum sumarverkum þarf að sinna.
Heimildarmaður rölti með myndavélina í vikunni og tók þá nokkrar myndir af áhaldahúsmönnum, hreppurum eins og þeir gjarnan kallast, við vinnu í þéttbýlinu. Meðal þeirra voru Skotarnir okkar, Paul, Reece og Gary, en þeir hafa farið fyrir sláttugengi sumarsins og hafa bætt sig dag frá degi enda lítt kunnugir þessari vinnu er þeir hófu störf í upphafi sumars. Í dag er þeirra síðasti dagur og á sunnudag hafa þeir kvatt litla samfélagið við Vopnafjörðinn og gera það með söknuði. Vilja þeir allir til Vopnafjarðar aftur.
Heimildarmaður átti einnig skamma viðkomu utan girðingar leikskólans og tók fáeinar myndir af nemendum og leiðbeinendum áður en gengið var veginn til baka.