Samkvæmt starfsmönnum áhaldahúss Vopnafjarðar eru mun betri fregnir af vatnsmálum sveitarfélagsins þó menn hafi farið varlega í yfirlýsingar allar. Án þess að ýkja nokkuð er þó ljóst að allt horfir til betri vegar en eftir mikla eftirgrennslan er jafnvel talið að gerlamengun vatns megi rekja til yfirborðsvatns úr fjallinum ofan vatnsbólsins. Sem kunnugt er hefur rignt meira en góðu hófi gegnir á svæðinu og þá verður stundum eitthvað undan að láta.
Starfsmenn Heilbrigðiseftirlits Austurlands eru þessa stundina að taka enn eitt vatnssýnið og standa vonir til að það gefi svo góða raun að vatn megi innbyrða án frekari viðvarana. Fæst orð bera hins vegar minnsta ábyrgð, rétt að bíða niðurstöðunnar og á meðan fylgja þeim ráðleggingum sem sveitarfélagið sendi frá sér í síðast liðinni viku. Þegar niðurstöður mælinga HAUST liggja fyrir mun frá því verða greint á þessum vettvangi.