Vetraropnun íþróttahúss og skyldusund

29.08 2011 - Mánudagur

Frá og með deginum í dag, mánudaginn 29. ágúst, er komin vetraropnun íþróttahúss og munu efalítið margir fagna því þar eð vetraropnun þýðir að opið er alla virka daga vikunnar milli kl. 14:30 og 20:00. Skyldusund stendur yfir næst vikurnar meðan veður leyfir á sl. ári miðaðist skyldusundið við 5 vikur. Er rétt að fólk taki tillit til þess að skyldusund grunnskólans stendur yfir að morgni virka daga vikunnar. Sundkennsla er einnig e. h. miðvikudaga milli kl. 12:30 - 14:00 en aðra daga einungis f. h.

Dreifibréf fer í öll hús sveitarfélagsins í dag með tilkynningu hér að lútandi en rétt eins og segir í bréfinu eru enn lausir tímar í sal. íþróttahússins og seld eru kort í líkamsræktina á vægu verði. Aðsókn í ræktina hefur verið undir væntingum þó harður kjarni gefi hvergi eftir en með þær aðstæður sem hér bjóðast mætti ætla að fólk sýndi ræktinni meiri áhuga. Fleira er þó líkamsrækt en hlaup í íþróttahúsinu, lóðarlyftingar og sund því útiveran, ganga, hlaup og hjólreiðar, eru dæmi um skínandi góða hreyfingu. Svo má nefna að Arlette mun fyrr en síðar fara af stað með Zumba, sem var firna vel sótt á umliðnum vetri og verður örugglega að nýju.

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir