Aurskriða féll í Fagradal

30.08 2011 - Þriðjudagur

Mikil aurskriða féll í innan verðum Fagradal, austan ár í vor eða snemma sumars. Upptökin eru í Dýjafjalli skammt frá svo kölluðum Tröllhnausum. Fór skriðan niður yfir Fálkaflóa og Þuríðarmýrar og niður í Fagradalsá skammt neðan ármóta Fagradalsár og Skinnugilsár. Og langt uppá grundir vestanmegin eða um 100 metra. Sýnir sig enn og aftur hvílíkt afl leysist úr læðingi þegar náttúran á í hlut. Skriðuna má sjá af Hellisheiði.

Skriðan er á að giska 150 – 200 metra breið á Þuríðarmýrum og vestan ár og líklega hátt í kílómetra löng. Skriðan hefur líklega fallið í vor eða sumar – hugsanlega í maí. Ljóst er að miklar gróðurskemmdir eru afleiðingar skriðunnar og má vænta að taki mörg ár að jafna sig en sennilega mun náttúran hafa sinn gang og leita jafnvægis án inngripa.

Meðfylgjandi myndir tók Árni Magnússon.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir