Heimildarmaður síðunnar leitaði upplýsinga um stöðu vatnsmála Vopnafjarðar í ljósi þess að mengun hefur fundist í vatni sveitarfélagsins. Til svars var starfsmaður Heilbrigðiseftirlits Austurlands, Leifur Þorkelsson, sem sagði stofnunina hafa tekið 6 sýni í gær og hefðu 5 þeirra komið vel út. Einungis eitt væri ekki í samræmi við hin en óháð mengun hefur sami staður sýnt torkennilega niðurstöðu og vaknað hafa grunsemdir að ekki sé allt með felldu með þann stað einan og hefur engin áhrif á neysluvatn íbúa þéttbýlisins.
Samanber ofan er í lagi að taka til óspilltra málanna og leggja sér vatnið til munns án þess að það sé soðið og munu eflaust margir fagna þessum fréttum þó ekkert sé að því í sjálfu sér að hafa ögn fyrir hlutunum við og við.