Tilkynning sveitarfélagsins vegna vatnsmála

31.08 2011 - Miðvikudagur

Frá því var greint í gær að mælingar Heilbrigðiseftirlits Austurlands í fyrradag á vatni Vopnifirðinga hafi gefið jákvæða niðurstöðu, Vopnfirðingar geti að nýju neytt vatns án þess að það sé soðið. Sveitarfélagið vill að þessu tilefni koma meðfylgjandi tilkynningu á framfæri við íbúa þéttbýlis Vopnafjarðar, sbr. að neðan.

Tilkynning til íbúa í þéttbýli Vopnafjarðar frá

Vatnsveitu Vopnafjarðar

 

Tekist hefur að komast fyrir þá gerlamengun, sem vart var við í neysluvatni í þéttbýli Vopnafjarðar.   Vatnið stenst því fyllilega gæðakröfur neysluvatnsreglugerðar nr. 536/2001.

 

Á þessum grunni tilkynnist  íbúum að ekki er lengur þörf á að sjóða neysluvatn, sem notað er  til drykkjar.

 

Í samvinnu við heilbrigðisyfirvöld og sérfræðinga á þessu sviði tókst að komast fyrir umrædda mengun, en talið er að yfirborðsvatn hafi komist í vatnskerfi bæjarins.

 

Íbúar eru beðnir velvirðingar á þeim óþægindum, sem þeir hafa orðið fyrir af þessum sökum.

 

Þessu er hér með komið á framfæri.

 

 

Vopnafirði 31. ágúst 2011

 

 

 

Vopnafjarðarhreppur                 Heilbrigðiseftirlit  Austurlands





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir