
Eitt glæsilegasta hús þorpsins er
Kaupvangur og sjálfsagt getur enginn íbúi sveitarfélagsins hugsað sér bæjarmyndina án þessa glæsilega húss, sem Fredrik Bald reisti á árunum fyrir 1890. Engu að síður er það staðreynd að menn veltu vöngum yfir hvað gera skyldi við húsið því í um langt árabil var viðhaldið á því ekkert og ástand þess sannast sagna hræðilegt. Sem betur fer sýndu ráðamenn þá framsýni að ráðast í endurgerð þess með þeim árangri að til þess er tekið hversu glæsilegt hús Kaupvangur er.
Þessa dagana er Ingólfur Bragi að yfirfara alla glugga hússins en rétt eins og áður er getið er viðhaldsþátturinn afgerandi í þessu húsi sem öðrum; eitt er að reisa hús, annað að viðhalda því. Það er eins með ástina ef út í það er farið, eitt er að stofna til hjónabands, annað að viðhalda því. Er hægt að mótmæla því?
Nema hvað, standa vonir við að haldið verði verkinu áfram og húsið endurmálað þó ekki liggi fyrir hvenær
það verður gert. Ytri skel Kaupvangs ber við augu allra en innihald þess síður. Innan veggja fer fram mikið starf og má staðhæfa að Kaupvangur standi að nokkru undir merkjum sem menningarsetur Vopnafjarðar og allt sem bendir til þess að starfið aukist fremur en hitt á komandi árum.
Ein þeirra sem aðsetur hafa í húsinu er Þórunn Egilsdóttir, verkefnisstjóri hjá ÞNA og oddviti sveitarfélagsins. Það var fyrir þrábeiðni heimildarmanns sem mynd var af Þórunni tekin og birtist hún hér. Önnur var tekin, sem er betri en ekki víst að samþykki fengist fyrir henni svo þessi fær að standa en Þórunn ræddi við karlana tvo um stund, málarann Ingólf og þann er þetta ritar.