Lokahóf yngri flokka Einherja í gær

02.09 2011 - Föstudagur

Ungmennafélagið Einherji hélt lokahóf yngri flokka félagsins í félagsheimilinu Miklagarði í gær, fimmtudaginn 01. september, og var mætingin með ágætum. Auðvitað eiga ekki allir heimangengt og sumir farnir í skóla en þeir sem sáu sér fært um að mæta áttu þar góða stund; móttóku viðurkenningar með þökk fyrir sumarið, grillaðir voru hamborgarar frambornir með frönskum og Prins Póló fór fékk hver og einn í hendur að máltíð lokinni - allir, börn jafnt sem fullorðnir.

Áður en kom að veitingu viðurkenninga flutti formaður Einherja, Einar Björn Kristbergsson, ávarp og fór í nokkrum orðum í gegnum starfsemi félagsins á sumrinu, sem var líflegt og skemmtilegt þrátt fyrir æði rysjótt veður. Stjórn félagsins leggur sig alla fram við að hlúa sem best að þátttakendum sínum en lykillinn að starfi félags sem Einherja er að sjálfsögðu hópurinn sem með því æfir og keppir. Framundan er haust og vetur með tilheyrandi æfingum innanhúss og er þessa dagana unnið að ráðningu knattspyrnuþjálfara en ekki er útlit fyrir að félagið bjóði uppá fimleika líkt og verið hefur sl. vetur.

Meðfylgjandi eru myndir heimildarmanns af því fólki sem mætt var í Miklagarð í gær en eins og svo oft áður er sá sem um myndavélina heldur ekki á mynd ... slík eru örlög hans!

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir