Þjóðræknisfélag Íslendinga kynnir sig

05.09 2011 - Mánudagur

Kaupvangur var vettvangur menningarviðburðar síðast liðinn laugardag er fulltrúar Þjóðræknisfélags Íslendinga mættu til að kynna félagið fyrir Vopnfirðingum og gestum þeirra. Voru til Vopnafjarðar mætt ræðsimannshjónin í Winnepeg, Atli Ásmundsson og Þrúður Helgadóttir, og formaður félagsins, Halldór Árnason. Auk þessa var boðið upp á tónlist er var í höndum þeirra hjóna, Brodda B. Bjarnasonar og Sóleyjar Gumundsdóttur, við harmónikuundirleik Kristmanns Jónssonar. Var gerður góður rómur að framlagi allra sem og viðurgjörningi frú Ágústu.

Um Þjóðræknisfélagið segir:

Markmið félagsins er að efla samhygð og samstarf milli Íslendinga heima og erlendis, og tengsl við fólk af íslenskum ættum utan Íslands. Félagið beitir sér fyrir eflingu samskipta við Þjóðræknisfélag Íslendinga í Vesturheimi samkvæmt sérstökum samstarfssamningi. Félagið rekur skrifstofu hjá Norræna félaginu í góðum tengslum við Utanríkisráðuneytið.

 

Ræða Atla ræðismanns var í alla staði hin athyglisverðasta og var auk þess sérlega skemmtilega flutt af manni sem ann starfi sínu og hefur það eitt að markmiði að uppfylla skyldur sínar við land og þjóð. Það sem mesta athygli vakti, fyrir utan þann gríðarlega fjölda sem ættir sínar getur rakið til Íslands búandi í Vesturheimi og hversu mjög afkomendur vesturfara hafa spjarað sig í fyrirheitnalandinu (sem er ýmist Kanada eða BNA), er hversu yndislega Atli talaði um það fólk sem hann hefur átt samskipti við þau 7 ár sem þau hjónin hafa búið vestra. Sögðu þau það hrein forréttindi að hafa fá tækifæri að vinna það starf sem þeim hafi verið fengið árið 2004 og þó önnur hafi boðist hafa þau alls ekki viljað yfirgefa Winnepeg og Manitoba.

Fyrir þann sem ekki veit er kynningarfundur sem þessi nauðsynlegur en eins smátt og allt er í landi okkar er hreint magnað að heyra af sigrum afkomenda vesturfaranna en um 1911, þegar Íslendingar voru um 80 þúsund munu Vestur-Íslendingar hafa verið um 25 þúsund, svo hver maður sér hver fjöldinn var sem hélt vestur. Og það voru ekki nein smámenni sem héðan fóru, það sýnir saga þeirra og kynslóðanna er eftir hafa komið. Svo merkilegt sem það kann nú að hljóma eru það tugir þúsunda sem líta á sig Íslendinga fremur en annars þjóðar þó tengslin séu farin að dofna við föðurlandið og blöndunin margþjóðleg.

Heimildarmaður notaði tækifærið og gerðist félagi í Þjóðræknisfélagið Íslendinga og hefur fyrir satt að stór hluti þeirra er fundinn sátu - og voru ekki félagar fyrir - hafi gjört slíkt hið sama. Með því að gerast félagi hefur hlutaðeigandi lýst yfir að hann sé reiðubúinn að leggja góðu starfi lið. Að ræðu Atla lokinni og tónlistarflutningi bráðskemmtilegum var boðið uppá krásingar að hætti Kaupvangskaffis, síðan talaði Halldór formaður uns tónlistin tók völdin í lokin.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir