Blaðamenn Reykjavík Grapevine á Vopnafirði

07.09 2011 - Miðvikudagur

Paul Fontaine blaðamaður á tímaritinu Reykjavík Grapevine kom til Vopnafjarðar ásamt ljósmyndaranum Natalie og kynnti sér Vopnafjörð sl. þriðju- og miðvikudag. Ferða- og menningarmálafulltrúi sveitarfélagsins átti samskipti við Hilmar Stein Grétarsson útgefanda tímaritsins áður en til heimsóknar kom og annaðist heimsókn þeirra tvímenninga, sem var eins víðtæk og við verður komið á tiltölulega skömmum tíma.

Um tímaritið: Reykjavík Grapevine er íslenskt tímarit á ensku, ætlað ferðamönnum. Blaðið var stofnað í maí 2003, og fyrsta tölublað þess kom út föstudaginn 13. júní sama ár. Stefna blaðsins er að vera tæmandi upplýsingaheimild um menningu og viðburði í Reykjavík – og víðar, samanber heimsóknin á Vopnafjörð. Stíll og sjónarmið blaðamanna sem ritstjóra eru á stundum háðsk og gagnrýnin, enda er blaðið fyrst og fremst ætlað til afþreyingar. Efni hvers tölublaðs er einnig aðgengilegt á stafrænu formi af heimasíðu blaðsins. Ritstjóri er Haukur S. Magnússon.

Stofnendur Reykjavík Grapevine voru þeir Hilmar Steinn Grétarsson, Jón Trausti Sigurðarson og Oddur Óskar Kjartansson. Tímaritið er núna gefið út í 30.000 eintökum og dreift um land allt. Blaðið kemur út aðra hverja viku að sumri til (apríl-september) og mánaðarlega að vetri til (október-mars), alls 18 sinnum á ári.

Í stuttu máli kom það Paul og Natalie á óvart hversu björgulegur staður litla samfélagið við Vopnafjörðinn er en það sem þau fengu að reyna í heimsókninni, annað en gæðamatur Borghildar á Hótel Tanga, var: Heimsókn í grunnskólann, Kaupvang, HB Granda, Selárdalslaug og Bustarfell auk þess að rölta um þéttbýlið. Veður gaf því miður ekki tilefni til náttúruskoðunar en þau töldu legu þorpsins eina og sér duga að sinni, sem þeim þótti einkar fögur.

Í skólanum var byggingin skoðuð utan sem innan og nemendur myndaðir við nám sitt. Þorgrímur Kjartansson hafði veg og vanda að heimsókn blaðamanna í HB Granda en Sveinbjörn Sigmundsson gerði skilmerkilega grein fyrir fiskimjölsverksmiðjunni – og Þorgrímur uppsjávarfrystihúsinu, starfsemi félagsins á Vopnafirði í heild. Í Kaupvangi hittu þau Ágústu Þorkelsdóttur að máli auk þess sem ritari upplýsti þau um sögu hússins og Múlastofu. Gerði Ágústa grein fyrir sögu staðarins, starfsemi Vesturfarans og vikið var að Vopnfirðinga sögu.

Selárdalslaug vakti athygli, eðlilega, en Bustarfell átti athygli þeirra óskipta. Björg tók á móti þremenningum að morgni miðvikudagsins og gerði með skýrum hætti grein fyrir því sem fyrir augu bar. Þótti gestunum mikið til koma og hefðu ekki fyrir nokkurn mun vilja missa af því tækifæri að skoða bæinn, minjasafnið. Upplýstari fóru blaðamenn Reykjavík Grapevine frá Vopnafirði en hvernig um heimsóknina verður skrifað er með öllu óvíst en heimamenn verða ekki sakaðir um að hafa ekki gert sitt besta til að draga fram heilsteypta og jákvæða mynd af samfélagi sínu.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir