Ísland - allt árið

08.09 2011 - Fimmtudagur

Síðastliðinn þriðjudag stóð SAF, Samtök aðila í ferðaþjónustu, ásamt iðnaðarráðneytinu fyrir kynningu á nýju verkefni á Hótel Héraði á Egilsstöðum sem fengið hefur heitið ÍSLAND – ALLT ÁRIÐ. Fór ferða- og menningarfulltrúi Vopnafjarðar til fundarins og tók þátt í líflegri umræðu að afloknum erindum. Ferðaiðnaðurinn á Íslandi veltir tugum milljarða á ári, raunar fer upphæðin langleiðina í 200 milljarða sem þýðir að geirinn er hinn 3ji stærsti í íslenska hagkerfinu á eftir sjávarútvegi og stóriðju. Mikilvægi ferðaþjónustu fyrir land og þjóð dylst engum en engu að síður á hún erfitt uppdráttar fyrir þær sakir að árstíðarsveiflurnar eru gríðarmiklar – sumarið er svo stutt.

 

Um árabil hafa hlutaðeigandi aðilar, s. s. iðnaðarráðuneyti, Ferðamálastofa, Íslandsstofa, SAF, markaðsstofur landshlutanna, Icelandair o. fl., leitað leiða til að lengja ferðatímabilið hafandi háönnina svo afgerandi. Ekki þar fyrir að erlendis líkt og hér á bróðurpartur fólks frí að sumarlagi en við skulum hafa það hugfast að þó met sé slegið í komu erlendra ferðamanna ár eftir ár er hlutur Íslands um 0.05% af heildarkökunni! Af liðlega 900 milljónum koma um 500 þúsund til Íslands … Það er því eftir nokkru að slægjast.

 

Það er mat SAF að framundan sé eitt stærsta verkefni sem íslensk ferðaþjónusta hafi staðið frammi fyrir en það er að stórauka vetrarferðaþjónustu um land allt. Í kynningu SAF segir að arðsemi í íslenskri ferðaþjónustu sé ófullnægjandi. Ástæðu hennar má að miklu leyti rekja til mikilla árstíðasveifla, sbr. inngang. Aukin arðsemi fyrirtækjanna er forsenda þess að fyrirtækin geti stundað vöruþróun, fræðslu- og gæðastarf og öfluga markaðssetningu auk þess sem hún leiðir til fleiri heilsársstarfa og betra jafnvægis. Aukin vetrarferðaþjónusta er því leiðin til aukinnar arðsemi.

 

Allt frá aðalfundi SAF 2010 þar sem fyrrverandi ferðamálstjóri Finnlands sagði félagsmönnum frá því hvernig Finnar fóru að því að gera ferðaþjónustuna yfir veturinn stærri en yfir sumarið hefur verið unnið að því að kom á samstarfsverkefni um vetrarferðaþjónustu. Stjórn SAF kallaði helstu aðila, sem að ferðaþjónustu koma, til samstarfs í upphafi ársins auk þess sem fulltrúar frá sveitafélögum og fulltrúar SA og ASÍ eiga sæti í stýrihóp sem þá tók til starfa. Kallað var eftir fjármagni frá ríkinu og settu SA og ASÍ það inn í kröfur í tengslum við kjarasamningana. Það varð því vendipunktur í málinu þegar ríkisstjórnin ákvað að setja kr. 300 milljónir á ári í 3 ár í markaðsverkefni í vetrarferðaþjónustu.

 

Ríkisstjórnin mun einnig setja ótilgreint fé til nýsköpunar aukalega á fyrsta ári. Skilyrði þessa framlags er að fyrirtæki og sveitarfélög jafni upphæðina. Samstarfsaðilar að verkefninu, sem hlotið hefur vinnuheitið ÍSLAND – ALLT ÁRIÐ svo sem áður greinir, eru nú þegar iðnaðarráðuneytið, Icelandair, Iceland Express, Reykjavíkurborg, Samtök ferðaþjónustunnar og Samtök verslunar og þjónustu og er unnið að því að fá fjárframlög frá ýmsum stórfyrirtækjum sem tengjast ferðaþjónustu. Fyrirtækin innan SAF leika þar stórt hlutverk en þátttaka ferðaþjónustufyrirtækja er bundin við félagsmenn SAF. Um er að ræða framlög fyrir fyrsta árið og eru þau ekki ávísun á hin tvö árin en vonandi munu þátttakendur sjá sér hag í að taka þátt öll árin.

 

Í sumar hafa tveir hópar verið að störfum í því skyni að undirbúa markaðsstarfið. Greiningarhópur undir stjórn Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands er að safna gögnum sem til eru um vetrarferðaþjónustu á Íslandi og gera könnun meðal fyrirtækja. Hópur undir stjórn Íslandsstofu er að afla gagna frá fjórum viðmiðunarlöndum, Noregi, Finnlandi, Kanada og Nýja Sjálandi en SAF fjármagnar það verkefni. Markmiðið er að bera saman samkeppnisfærni Íslands gagnvart þessum löndum á sviði vetrarferðaþjónustu og skoða hvernig þau starfa. Stefnt var að báðir hópar lykju störfum í lok ágúst, tókst það og byggir kynningin á störfum þeirra. Á sama tíma hefur Ferðamálastofa látið vinna kortlagningu á landssvæðum sem er mjög mikilvæg vinna fyrir þetta verkefni. Þessar niðurstöður verða nánar kynntar síðar. Markaðsátakið ÍSLAND – ALLT ÁRIÐ er rekið af Íslandsstofu og verður umsjón með verkefninu á hendi þeirra sem munu standa að samningnum.

 

Þess má að lokum geta að verkefnið „Inspired by Iceland“ hefur þótt takast mjög vel og að mati þekkingaraðila sem og þeirra sem hingað hafa komið og látið heillast af landi og þjóð.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir