Auglýsing frá Heilbrigðiseftirliti Austurlands

08.09 2011 - Fimmtudagur

Auglýsing um starfsleyfi fyrir atvinnurekstur sem getur haft í för með sér mengun.

Heilbrigðiseftirlit Austurlands hefur gefið út tímabundið starfsleyfi fyrir aðstöðu til að svíða dilkahausa í gámi á lóð Eldisfóðurs að Háholti 7.   Leyfið er gefi út á grunni reglugerðar nr. nr. 785/1999 um starfsleyfi fyrir atvinnurekstur sem getur haft í för með sér mengun, en tekur ekki til meðferðar matvæla.

Starfsleyfið og fylgigögn liggja frammi á skrifstofu Vopnafjarðarhrepps til kynningar fyrir almenning.  Er það í samræmi við 24 gr. í fyrrnefndri reglugerð.   

Vilji menn koma á framfæri ábendingum eða athugasemdum um starfsleyfið skal það gert skriflega til skrifstofu Heilbrigðiseftirlits Austurlands  og berast fyrir lok október 2011.

                        Helga Hreinsdóttir, frkvstj.

HAUST Heilbrigðiseftirlit Austurlands
Búðareyri 7, 730 Reyðarfjörður





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir