Árið 2011 munu Vopnfirðingar í fyrsta sinn komast í vegasamband við þjóðveg 1 með heilsársvegi, þ. e. uppbyggðum vegi með bundnu slitlagi, hannaður og lagður samkvæmt bestu þekkingu fagfólks. Tímamótin eru fyrir Vopnfirskt samfélag hreint stórkostleg og jafnvel þó heimildarmaður hafi tekið forskot á sæluna ásamt betri helmingnum sl. laugardag fer ekki á milli mála hvers er að vænta. Ekki nóg með að heimamenn njóta þess að komast í vegsamband við þjóðveg 1 vía nýjan glæsileg veg um fagran Vesturádalinn heldur fá þeir einnig nýjan innansveitarveg sem ellegar hefði aldrei boðist.
Sagan er ekki öll sögð þar með því í fyrsta sinn í sögu hins Vopnfirska samfélags mun íbúum og gestum þess bjóðast millidalaleið yfir Hofsháls sem stytta mun leiðina milli Hauksstaða og Hofs, sem dæmi, um tugi kílómetra. Samgöngubótin er án hliðstæðu sé horft til samskipta innan sveitarfélagsins. Þá munu þeir sem kjósa að aka um Hofsárdalinn, það mun fólk án efa kjósa að gera öðru hverju til tilbreytingar, og nýta innkomunnar eftir sem áður úr suðri, geta gert það - og um leið upplifa áður óþekktan útsýniskost ofan Hofshálsins.
Ekki liggur fyrir á þessari stundu hvenær vegaframkvæmdum endanlega lýkur né heldur hvenær formleg opnun vegarins verður en svo sem meðfylgjandi myndir sýna eru framkvæmdir komnar vel á veg og ekki ástæða til annars en að láta sig hlakka til þeirrar stundar þegar endalegum áfanga hefur verið náð. Þau tímamót marka að einhverju leyti nýtt upphaf fyrir samfélagið Vopnfirska og full ástæða til að fagna þeim tímamótum með eftirminnilegum hætti.