
Menningarfulltrúar sveitarfélaga á Norður- og Austurlandi, þ. e. Norðurlandi eystra/Eyþingi, komu saman til árlegra funda í vikunni á Austurlandi en á sl. ári hélt hópur Austfirðinga norður og naut gestrisni norðanmanna í það sinnið. Komið var að Austfirðingum að halda utan um viðburðinn er hófst með málþingi sl. þriðjudag á Hótel Héraði með yfirskriftinni
„Eiga sveitarfélög að byggja upp atvinnutækifæri á sviði lista?“ er menningarráð Eyþings og Austurlands stóðu að. Reyndu fyrirlesarar að svara spurningunni og gerðu það þó einhlítt svar hafi ekki fengist enda málið ekki aleinfalt að svara.
Að málþingi loknu, sem var vel sótt og margar fyrirspurnir settar fram, hélt hópurinn að Vonarlandi þar sem Norðaustan 10 verkefnið var kynnt og er unnið í samvinnu Þorpsins og Nýsköpunarmiðstöðvar. Að svo búnu voru Egilsstaðir kvaddir og haldið inní Fljótsdal, að Skriðuklaustri, sem var meginvettvangur funda hópsins. Var vel á móti hópnum tekið, Skúli Björn staðarhaldari og Gunnþórunn oddviti gerðu grein fyrir stofnuninni, sveitarfélaginu auk þess sem gamla klaustrið var skoðað en undanfarin ár hefur staðið þar yfir umfangsmikil vinna og sýnir að húsakynnin voru mikil að vöxtum. Að kynningu lokinni var haldið í Klausturkaffi þar sem fundað var og snæddur málsverður að hætti listakokksins Elísabetar.
Eins og vera ber vegast á formlegir fundir og óformlegt spjall þar fyrir utan en eins mikilvægt er að koma saman á skipulögðum fundum skipta hinar stundirnar ekki síður máli – orðið endurmenntun fyrir þátttakendur heyrðist nefnt í þessu sambandi og er ekki fjarri sanni.
Þátttakendur eru á einu máli að mikilvægi þess að koma saman, tjá sig og hlýða á sjónarmið annarra verði aldrei ofmetið. Óháð stærð sveitarfélaga er þörfin hin sama; að standa uppúr hinum daglegu verkum, hitta aðra að máli og taka þátt í krefjandi umræðum þar sem áleitinna spurninga er spurt er sem fyrr greinir e. k. endurmenntun fyrir menningarfulltrúann. Getur vettvangur sem þessi aldrei orðið annað en til góðs fyrir hlutaðeigandi – og samfélag hans um leið. Að síðasta fundi loknum var haldið úr Skriðuklaustri yfir í Snæfellsstofu hvar hópurinn fékk þarfar upplýsingar um Ríki Vatnajökuls, bygginguna og hina glæsilegu sýningu sem þar er að finna.
Undirbúningur og utanumhald var sem fyrr í höndum menningarfulltrúanna, Signýjar Ormarsdóttur og Rangheiðar Jónu Ingimarsdóttur, og eiga sinn stóra þátt í að jafn vel tókst til, í ár sem og í fyrra.
Meðfylgjandi eru nokkrar myndir og sýna að þar sem gott fólk kemur saman er vinnan tekin af alvöru en eins og vera ber ávallt stutt í gleðina. Ljóst er að framhald verður á og raunar lagt til að á næsta ári verði menningarfulltrúum af öllu landinu boðin þátttaka.